Miða við að það er komið nýtt ár, og að það er farið að líða nokkuð á það, þá held ég að ég æti að skella inn þó ekki sé nema einu bloggi.
Margt að gerast í þjóðfélaginu og í einkalífinu. Ég hef ekki mikið af þjóðfélagsfréttum að segja, ekkert nýtt að minsta kosti, ég hef ekki tekið þátt í þessum mótmælum við alþingishúsið, þrátt fyrir að ég sé mjög ósátt við þjóðarleiðtogana sem sitja sem fastast þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar sé þeim andvígur. Það er ótrúlegt að fólk sem silgdu þjóðarskútunni í strand, skuli eiga fá að bjarga henni úr þessum brotsjó sem á henni dunir núna. Þeir ættu að sýna sóma sinn í því að segja af sér og hleypa að menntuðu fólki sem gætur reynt með reynslu sinni og þekkingu að koma skútunni á flot aftur.
Af mér er það að frétta að ég er búin með ár í lögfræðinni. Ég er enn jafn hamingju söm og ég var fyrir rúmu einu og hálfu ári, þegar við Brynjar byrjuðum saman.
Þrátt fyrir að hafa lítinn tíma fyrir lögfræðina nú þegar, þá er ég komin matreiðlus æði!!! nú geri ég ekkert við frístundirnar annað en að liggja yfir matreiðslubókum og bbc food, eða eitthvað í þá áttina til að fræðast um allra heims kridd og matargerð.
Er þá það ekki skildan að minnast á magga? Hann er bara ok, hann er byrjaður í skólanum aftur eftir jólafríið og kvefpestina. Hann er orðinn slapparri vegna æfingarskorts vegna þess að hann mætti hvorki í skólan né í þjálfun í heila viku. Skapið hefur allaveganna ekki versnað og hann er bara ágætur.
Hvað hinum að frétta, þá er ekkert af gamlasettinu að frétta, annað en að mamma er komin í skartgripagerð og er meir að segja að koma upp heimasíðu sem verðu auglíst betur síðar, eða þegar hún er alveg komin.

Ella frænka fór í aðgerð fyrir nokkru og er enn að jafna sig. Það er ekkert að frétta af pabba.
jæja þetta næir í bili....